Nýjar myndir
18.9.2007 | 15:40
Það eru komnar fleiri myndir frá ættarmótinu í ágúst. Ég fékk myndir hjá Ragnheiði og Bjössa á Höfn og setti þær inná síðuna hjá mér. hér er linkur á þær: http://www.123.is/album/display.aspx?fn=hallajons&aid=412394 Endilega kíkið á þær.
Ég er ennþá að vinna í póstlistanum og biðst velvirðingar hvað þetta gengur hægt....en þetta mun koma Er að skoða hvernig þetta virkar allt saman...ekki alveg sátt með það.
Annars er bara rólegt í ættinni að minnsta kosti hefur róast innlitið hérna inn, en vonandi er fólk nú aðeins að kíkja til að halda þessu lifandi.
Amma Dóra hélt uppá 80 ára afmælið sitt á síðustu helgi og er hægt að skoða myndir þaðan á síðunni minni (www.123.is/hallajons) og var þetta rosalega gaman. Það mættu allir nema sonur Valdísar frænku sem býr í Noregi.
Endilega látið vita af ykkur og ef eitthvað er að gerast látið mig vita og ég kem því hérna á síðuna. hallajons@islandia.is
kveðja í bili Halla sem er lasin heima
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.