Bloggfærslur mánaðarins, júlí 2007
jamm og jæja
11.7.2007 | 11:39
Það er komið á hreint að það er stórt gasgrill á staðnum sem við getum notað (svo er spurning hvað er stórt!) Þannig að það ætti að vera hægt að næra sig í hádeginu á laugardeginum.
Síðan er það spurning með kvöldið. Það þurfa að fara að berast svona nokkuð líklegar lokatölur fyrir það. Ég veit það er alltaf einhver + eða - en þurfum að vera eins nákvæm og mögulegt er í þeim málum. Þurfum að láta þau vita líklegast í kringum mánaðarmótin hversu margir verða í kvöldmatnum. Þannig að nú er kominn tími til að smala saman endalegum tölum. Ég var komin með töluna 80 við síðustu talningu...við hljótum nú að ná þessu í 100! eða hvað? er ég að láta mig dreyma of mikið?
En næst á dagskrá hjá mér og minni fjölskyldu er að minnsta kosti ættarmót um næstu helgi og þar skylst mér að sé þegar komið um 170 manns í skráningu. Þannig að þar fær maður smá sýnishorn hvað er hægt að gera...skal reyna að skrifa niður hugmyndir hehe
Þangað til næst kveðja Halla
p.s setti inn svona smá könnun...bara til að athuga hvort fólk sé að kíkja hérna inn ennþá hehe
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 11:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)