Færsluflokkur: Vinir og fjölskylda
Fyrsti nefndarfundur haldinn 12. október 2010
12.10.2010 | 22:47
Sæl öll frábæra fólk! :)
fyrir hönd ættarmótsnefndar þá sendi ég ykkur stutt skilaboð núna. En fyrsti fundur var haldinn núna í kvöld og til fróðleiks fylgja hér með nöfn nefndarmanna:
Halldóra Þ. Jónsdóttir (Halla)
Guðrún Þorgerður Ágústsdóttir
Guðrún Lárusdótir (Gurra)
Ólafía Aradóttir
Kolbrún Pálsdóttir
Frosti Jónsson
Endilega fylgist hér með næstu vikur og mánuði því stefnt er að því að dagsetning og staðsetning liggi fyrir sem fyrst. Sem sagt allt komið á fullt! Þá geta allir tekið dagsetninguna frá fyrir næsta sumar! Verður besta ættarmót ever sko! ;)
Já síðan má ekki gleyma að hvetja alla til að leita uppi ættingja og benda þeim á þennan hóp hérna og fjölga...við erum pottþétt fleiri á fésinu! ekki satt.
I know there are people here that don´t live in Iceland and icelandic is not their first language so here is very short translation:)
we have had our first meeting in prepearing a family meeting next summer and the names that is here are the name of the people that will be do the work..at least to start with and the all the great people in the family will do the rest! :) So just look here on this site and soon there will be dates and place for next summer so everybody can start to plan to go there! :)
Hlakka til að sjá ykkur öll næsta sumar / Looking forward to see you all next summer :)
fyrir hönd nefndarinnar
Halla
Nefndin að lifa við....
20.7.2010 | 23:46
Já ekki veitir af því að hún lifni við enda styttist í næsta ættarmót! :) Það er á dagskrá að halda næsta mót sumarið 2011. Allar fréttir verða setta hérna inn, við höldum þessari síðu lifandi og einnig á Facebook, þannig að allir geti fylgst með.
Væri gaman að heyra frá ykkur hvernig stemmingin er fyrir næsta ættarmót! :)
kv Halla
22.2.2009 | 16:45
Nú höfum við komið okkur upp hóp á Facbook og er gaman að segja frá því að margir eru komnir þar inn og fer fjölgandi. En það þýðir ekki að þessi síða verði látin detta niður...en það er bara rólegt eins og er en ætti að lifna yfir henni þegar nær dregur ættarmóti.
Þannig að ef það eru einhverjir sem ekki eru komnir í hópinn á facebook þá endilega kíkið á okkur þar líka.
kv Halla
Lítil að gerast...
11.5.2008 | 19:43
Það er lítið að gerast þessa dagana...maður rifjar aðeins upp atganginn við undirbúninginn á síðasta ári og var hann bara nokkuð skemmtilegur Svo er það spurning hvenær næsti undirbúningur hefst....þarf ekki að fara að halda fund hehehe
Ef það eru einhverjar fréttir úr ættinni þá endilega látið mig vita...langar endilega að halda þessari síðu aðeins lifandi. Set kannski inn myndir annað slagið til að rifja upp hvað var skemmtilegt.
kveðja Halla.
p.s ein mynd svona í lokin...
Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 19:58 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Flottar frænkur!
14.1.2008 | 20:17
Það er óhætt að segja að við eigum flottar frænkur og ekki eru foreldrar þeirra síðri. Endilega þeir sem misstu af viðtalinu við Snædísi, Áslaugu og foreldra þeirra að kíkja á það á vef www.ruv.is og þar er hægt að skoða Kastljósið frá því í kvöld.
Líður að jólum
16.12.2007 | 20:00
Það sem það líður að jólum þá ætla ég að setja hér inn jólakveðju til allra ættingja og þakka fyrir síðast. Við sjáumst svo vonandi hress fljótlega og verum dugleg að pikka í hvort annað ef við sjáumst...því við erum svo mörg og maður man kannski alveg eftir öllum andlitum!
Gleðileg jól og farsælt komandi ár!
Tónleikar
14.11.2007 | 20:20
Fékk þetta sent í tölvupósti. Langaði að setja þetta inn hérna svo fólk vissi nú af þessu (vona að það sé í lagi að setja þetta hérna)..spurning bara hvort einhver kíki hérna inn Sé að þetta sést ekki mjög vel þannig að set smá texta líka með en þessir tónleikar er á þrem stöðum:
Borgarnes - Landnámssetur: 18. nóvember kl 16:00. Miðasala við innganginn og í síma 437 1600
Reykjanesbær - Bíósal Duushúsa: 19. nóvember kl 20:30. Miðasala við innganginn
Reykjavík - Iðnó: 20. nóvember kl 20:30. Miðasala við innganginn og í síma 562 9700
Miðaverð 1000 kr.
Ágúst Ólafsson söngur
Kristín Lárusdóttir selló
Íris Dögg Gísladóttir fiðla
Ástríður Alda Sigurðardóttir píanó
Tatu Kantomaa harmónika
Vinir og fjölskylda | Breytt 15.11.2007 kl. 19:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Lítið að gerast
4.11.2007 | 11:40
Nýjar myndir
18.9.2007 | 15:40
Það eru komnar fleiri myndir frá ættarmótinu í ágúst. Ég fékk myndir hjá Ragnheiði og Bjössa á Höfn og setti þær inná síðuna hjá mér. hér er linkur á þær: http://www.123.is/album/display.aspx?fn=hallajons&aid=412394 Endilega kíkið á þær.
Ég er ennþá að vinna í póstlistanum og biðst velvirðingar hvað þetta gengur hægt....en þetta mun koma Er að skoða hvernig þetta virkar allt saman...ekki alveg sátt með það.
Annars er bara rólegt í ættinni að minnsta kosti hefur róast innlitið hérna inn, en vonandi er fólk nú aðeins að kíkja til að halda þessu lifandi.
Amma Dóra hélt uppá 80 ára afmælið sitt á síðustu helgi og er hægt að skoða myndir þaðan á síðunni minni (www.123.is/hallajons) og var þetta rosalega gaman. Það mættu allir nema sonur Valdísar frænku sem býr í Noregi.
Endilega látið vita af ykkur og ef eitthvað er að gerast látið mig vita og ég kem því hérna á síðuna. hallajons@islandia.is
kveðja í bili Halla sem er lasin heima
Gunnar Valur
9.9.2007 | 18:52