póstlisti

jæja maður er nú ennþá á fullu í einhverju tengt ættarmótinu.  Nú er komið að því að virkja netföngin sem fólk skráði á blaðið yfir matnum.  Ég er að vinna í að búa til póstlista og mun senda ykkur boð á þennan póstlista og þá er hægt að senda póst á alla sem eru þátttakendur í póstlistanum.  Þannig að ef þið fáið póst frá  vididalsa@yahoo.com þá er ég að senda ykkur boð á póstlistann sem er með netfangið vididalsa@yahoogroups.com  reyni að hafa þetta einfalt.  Fáið svo lykilorðið sent í tölvupósti til að skoða þetta....held þetta virki svona. Hef aldrei gert þetta áður en þið takið viljann fyrir verkið og ég geri mitt besta Undecided  kemur allt í ljós svona þegar þetta fer að virka. Þannig að endilega ef það eru einhverjir sem voru ekki á ættarmótinu en vilja vera með í þessum póstlista þá endilega látið mig vita og ég sendi ykkur boð. Því fleiri því skemmtilegra! 

kveðja í bili Halla. 

p.s eru fleiri að setja myndir á netið??

las yfir það sem ég skrifaði...skildi það varla sjálf en vonandi skilur þetta einhver hehe Halo


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Mæli með því að fólk reyni að kíkja í DV í dag..ættuð að þekkja þar eina manneskju eftir helgina. 

kveðja Halla

Halla (IP-tala skráð) 14.8.2007 kl. 14:19

2 identicon

Ég skoða aldrei DV og gerði það því ekki í gær! Nema hvað - Halla þú verður endilega að segja okkur hver það var sem var í DV í gær :)

Kv. Gurra

Gurra (IP-tala skráð) 15.8.2007 kl. 11:25

3 identicon

Nú engin önnur en hún móðir mín!  Þorsteinsína Guðrún.  Það var verið að fjalla um mannanöfn og svona öðruvísi nöfn.  Ég keypti auðvitað DV...hvað gerir maður ekki fyrir móður sína!   skal reyna að setja eitthvað af því hérna inn..má maður ekki skanna svona úr blöðum og setja á netið?? Það hlýtur að vera! skoða það

Halla (IP-tala skráð) 15.8.2007 kl. 14:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband